Maturinn sem mér var boðinn var ógeð.
Maturinn sem mér var boðinn var ógeð.
Keath Ósk er í Íslendingabók.
Ég fór einu sinni að sækja eldri frænku í Kaldársel og fannst þetta líta út eins og ég ímyndaði mér hræðilegt minaðarleysingjahæli og þorði aldrei að fara í sumarbúðir.
Það er gömul merking og ný merking. Búið að breyta.
Minnst einn slaufaðan karl á hvern framboðslista.
Myndi það drepa einhvern að hafa strætó oftar en á klukkutíma fresti frá Leifsstöð?
Glæpsamlegt
Er að passa lasið eins árs barn og ekkert huggar hann eins og þegar ég spila Þrjú á palli og syng með.
Blonde
Þú hefðir getað sönglað það og sent mér og ég hefði strax kveikt 😇
Hefðir átt að spyrja mig. Hemmi, frískur og fjörugur, geggjuð plata. Spila hana stundum fyrir barnabörnin.
Samúð. Er í sama pakka.
Og smá smjör.
Ég hitti stundum einn líffræðing sem rannsakar haferni. Hann hvíslar að mér hvar þeir eiga heima. Hér er hann að klappa sultuslökum erni sem liggur á bakinu.
Svona tíu sinnum á dag les ég orðið „áskorun“ þar sem mér finnst að ætti að standa vandamál/verkefni/viðfangsefni/úrlausnarefni.
Enginn hefur sagt þessu gamla danska fólki sem ég mæti dag eftir dag fyrir utan búðina á Nørrebro að það sé ekki hægt að hjóla þegar það er hífandi rok, nístandi frost og ísing.
Amen og halelúja
Fékk mér púrtvínsglas og hnetur og áferð tannanna er eins og ég hafi borðað gæruskinn.
Er að spá í að byrja að reykja. Er hægt að nota uppsafnaðan lífeyrissparnað í sígó?
Frekasti karlinn er í frekjukasti.
Okkur, gömlu hjónunum, leiddist báðum. Svo margt slæmt við þessa mynd.
Ó, já. Þetta er óþolandi auglýsing.
Not all men
Allir gamlir karlar elska Kára litla og Lappa.
Það er það EINA.
Hafnarfjörðurinn í mér sko!
Súkkulaðikleina. Aldrei heyrt súkkulaði fyrr en hjá þeim í GM.
Er það sama fólk og skrifar alkahólisti?
Í þessu bakaríi á Klapparstíg fæst unaðslegt rúgbrauð og himneskir kardimommusnúðar og allt á góðu verði. Ég veit ekki hver rekur það og enginn bað mig um að segja frá þessu eða auglýsa.