Rauðrófufalafel með halloumi á Chickpea á Hallveigarstíg 🥰
Rauðrófufalafel með halloumi á Chickpea á Hallveigarstíg 🥰
Ég skil ekki afhverju umboðsmaður barna er ekki barn! Það er fáránlegt!!
Sagði hneykslaða 9 ára barnið mitt yfir kvöldfréttunum.
Að vera ekki ein að vinna á Kvennasögusafni 😭
Er að networka á Erasmus+ kvöld-vinnustofu-viðburði og er eina landið sem er með bara eina manneskju að vinna þar…
(Es. það er allskonar gott fólk á Landsbókasafni sem vinnur með mér tbf)
Þetta gerist svo hratt allt, ætla að gera tilraun til að þræða hér á Bluesky, líka svo ég muni sjálf.
Núna er ég á málstofunni HER*STORY ALS DEMOKRATIEARBEIT á þýskri á ráðstefnu þar sem kollegar mínir hjá DDF (Digitales-Deutsches-Frauenerarchiv) eru í panel.
Netverkið verður formlega stofnað í kvöld og manifestó-ið okkar gefið út. Ég hef hér skundað um borgina með kollegum mínum frá m.a. Spáni, Belgíu, Ítalíu, Lettlandi, Kýpur, Sviss, Þýskalandi, Svíþjóð, Tékklandi og Austurríki að heimsækja mismunandi femínísk skjalasöfn.
Halló halló og góðan daginn frá Berlín. Ég er hér á ERASMUS+ vinnustofu femínískra, kvenna og hinsegin bóka-og skjalasafna að stefna evrópskt netverk sem ætlar að bjóða fleiri minningastofnunum, félögum og sérfræðingum að vera með.
Góðan daginn kæri bergmálshellir. Eitt lag til að taka inn í helgina. open.spotify.com/track/56rpEO...
Vildi óska að umræða síðustu daga hefði verið um woke-þvott – eins og við tölum um bleikþvott og grænþvott sem dæmi.
We already partake in peace keeping missions with the UN and others. It’s organized by an office within the Ministry of Foreign Affairs. We send police, doctors, journalists and diplomats for example.
Níu ára barn í röndóttri ullarpeysu með slegið ljóst hár grúfir yfir ljóðabókina Stormviðvörun og skrifar nokkrar ljóðlínur upp í vinnubók við brúnt borðstofuborð.
Var líka að hugsa um þessa ljóðabók í dag. Lásum hana svo fyrir heimanám 9 ára sem valdi eitt ljóð til að skrifa upp ⚡️
Og Sigríður þessi sér um Leikminjasafn Íslands á Landsbókasafni og það verður sko alls konar um Grímu, Saumastofuna og leikhúsár Vigdísar síðar á þessu (kvenna)ári. Ég er allavega mjög spennt 👀
Og mikið af pallíettum í kosningasjónvarpinu 🪩
Þemalagið mitt frá því 24. október. Ætla að syngja það sérstaklega hátt í dag því í dag á ég afmæli 🎶🎵🎶
Fjögurra ára barnið mitt er að mylja laufabrauði yfir morgunkornið sitt. Gleðileg jól!
Ég á miða á morgun og hlakka svo til!
Ég líka!
Ég er yfirleitt svo niðursokkin í eigin hugsanir að ég fatta nokkur hundruð metrum síðar að ég þekkti líklega manneskjuna sem ég var að ganga fram hjá og það hefði því verið betra að heilsa.
Er Ugla mætt?
Vei!
Húrra!
Foreldrar barna minna eru eins
Jæja þetta hefur verið ágætur klukkutími á þessu appi en segið mér frekar hvernig ég skora á ykkur á explo
Þakka þér fyrir þetta góða tækifæri til að dómdagsskrolla á enn einum staðnum 🥰
Fjögurra ára dóttir mín kallar David Attenborough (uppáhaldið sitt) alltaf Eyvind Attenborough, sama hversu oft hún hefur verið leiðrétt. Hann mun aldrei heita neitt annað fyrir mér úr þessu.
Hey, nýr staður til að aðallega lesa það sem önnur hafa að segja!